24 janúar, 2007

Örljóð 2




VARNAGLI

Einu sinni
var
nagli.


VARÐHUNDUR

Einu sinni
var
hvolpur.
Hann
varð
hundur.


VARSJÁ

Einu sinni
var
sjá
neðan sjávar.
Það
var
neðansjávarsjá.


VARÐELDUR

Einu sinni
var
neisti.
Hann
varð
eldur.


VIÐUNDUR

Einu sinni
varð
varðhundur
var
við
undur.

FANNFERGI

Litla gula
hænan
fann
fergi.

En litla gula
hænan fann
hvergi
fræ

því það
var
fannfergi.

Comments:
Þetta er rosalegt!

Einu sinni
var
úlfur,
sem
varð
úlfur.

Njeee, þú gerir þetta betur.
Heiða
 
Bara að spekulera

Hver var Úlfur ?
Var Úlfur
kannski varúlfur ?
er hann það enn ?
Er hann þá í dag erúlfur ?

Vonandi getur einhver svarað mér með þetta.
Kv ErGestur
 
SMÁSJÁ
Betur sjá augu en auga
eitt auga getur þó séð smá
með smásjá.
.
DAGATAL
Stundum berst það í tal
að dagar okkar séu taldir
þegar talað er um daga
verður til dagatal.
.
Ort í Finnlandi jan. 2007
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?