25 desember, 2006

ÖRLJÓÐ 1

Fjarlægðin milli tveggja eyrna
virðist stundum svo óheyrilega löng.

...En er þegar betur er að gáð
fyrst og fremst
inní hausnum á fólki.

23 desember, 2006

Hugheilar


Kæru landsmenn nær og fjær til sjávar og sveita. Sendi ykkur hugheilar jólakveðjur með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Megi gleði og friður ríkja í hjörtum ykkar yfir hátíðirnar.

11 desember, 2006

Svona dóu risaeðlurnar út


10 desember, 2006

Kaikki tanssiman Diskoo


06 desember, 2006

Ný útsetning = New outstallation




Þetta verk er sett upp sem minnismerki um fataiðnað á Akureyri.
Það mun þó sjálfsagt ekki standa mjög lengi því þetta hús mun líkast til verða rifið fljótlega.

03 desember, 2006

Limrur

Eitt það allra vinsælasta í jólabókaútgáfunni þetta árið eru s.k. limrur. Þær ku vera að forminu til íslensk afbökun á írskum drykkjuvísum. Margir hafa að því er virðist ætlað sér að öðlast fé og frama á útgáfu slíkra vísna þetta árið. Og er það vel. Sökum gífurlegra anna við jólaskreytingar, hangikjöts- og jólaölssmökkun hefur Steinn þó ekki séð sér fært að taka þátt í jólabókaflóðinu. Hann gaf þó vefstjóra góðfúslegt leyfi (með semingi þó, blessaður) að birta hér limrur nokkrar sem hann hefur sett saman af stráksskap á aðventunni.

Hinni og hinn

Hávaxni bróðirinn Hinni.
Hann var mun stærri en Binni.
En hann þótti smækka
er hinn fór að stækka
og loks varð hann miklu minni.


Akademísk metorð

Háskólaaðjúnktinn Hektor
var í hálfri stöðu sem lektor
en svo 100%
og síðar sem dósent
Uns loks var hann ráðinn sem rektor


Steingrímur afneitar Framsóknarflokknum

Hann fór inn í skápinn hann Fommi
með flösku af grænleitu rommmi
og borðaði helling
af hrísgrjónavelling
og kom útúr skápnum sem kommi.


Af ævintýrum Bin Ladens í Þýskalandi

Í þýsku var góður, en þó sama
um þjóðverja, hreinláta og rósama;
Ich brauche nicht baden.
Ich Bin eingeladen
zum Nachspiel, und ich heiße Osama !!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?