19 ágúst, 2006



Jújú, Það lá að að það kæmi loksins sumar þegar liðið er langt fram í ágúst og löngu orðið kveldrokkið um miðaptansbil. Upphefst þá jafnan löngum haustgalsi í hjörtum mannanna og kvennanna þá er líða fer að töðugjöldum fyrri sláttar og fyrstu undanvillingar rjátla heim sílspikaðir eftir fjallvist. En svona ykkur að segja þá varð mér á að detta næstum fram af bryggjunni og beint oní Norður-Atlantshafið þar sem mið-jakútískar rekaviðarrótarhnyðjur mara í hálfu eða kvart kafi þegar mest lætur en væntanlega nokkru minnu þá er minnst lætur. Varð mér þá á orði: Þetta land er greinilega of lítið fyrir mann eins og mig. Fór ég því á netið og pantaði mér ferð til Kaupmannahafnar þann 24. ágúst á næsta fimmtudag. Ef einhver vill að ég kaupi fyrir sig Tobblerón eða emmogemm kúlur í Fríhöfninni þá látið mig vita.

Comments:
Land mun undir leggja fót
lýður okkar frera.
Hann mun seinna á mannamót
mjöð í kassa bera
 
Er hann þarflaus innan lands
um er því að gera
að senda hann burtu farvel Frans
þó fyrr hefði mátt vera
 
Steinn, ef þú vilt kaffikorg
í Keflavík hjá oss þiggja
lengdu þá leið úr Köbenborg...
og kondu í kaffi á Suðurgötu 18, ég nenni ekki þessum helvítis leirburði lengur. Súkkulaði með kaffinu vel þegið, en alls ekki skilyrði. Vertu velkominn!
 
Skrifa ummæli



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?